IS16606/11
PL: 0/0 PRA3: FRÍR DNA niðurstöður fyrir PRA3 Augnskoðaður FRÍR Þyngd: 7 kg Sýningarárangur: FJölmörg Norsk meistaraefni, 3 x Vara Meistarastig 3 x Norsk Meistarastig, Reykjavíkur Winner 2016, Íslenskur meistari, alþjóðlegur meistari, Norðurljósameistari, stigahæsti Tíbet Spaniel á lista HRFÍ árið 2016. Fjölmörg BOB og BOS auk þess sem hann hefur fengið annað sæti í grúppu 9. |
Tíbráar Tinda Blue Poppy "Nói" fæddist þann 30. ágúst hjá Tíbráar Tinda ræktun á Íslandi. Nói er dásamlegur tíbbastrákur, ljúfur og kátur, enda alltaf brosandi. Líkt og tíbbastrákar almennt er hann voða mömmustrákur, afskaplega kelinn og mjúkur. Hann er afar klár og útsjónasamur, fljótur að læra og deyr aldrei ráðalaus. Nói er af flottum ættum, foreldrum og syskinum hefur gengið vel á sýningum bæði heima og erlendis. Nói hefur einnig verið sýndur með góðum árangri, bæði á Íslandi og í Noregi, enda flottur fulltrúi tegundarinnar. Nói hefur átt fimm got í Noregi og eitt á Íslandi, og gefið fallega, heilbrigða og skapgóða hvolpa. |