Sedalia's er lítil ræktun og fá got. Ég vel heimili eftir því sem ég tel henta hverjum hvolpi best. Sem ræktandi er mikilvægt fyrir mig að nýir eigendur séu búnir að kynna sér vel eiginleika tegundarinnar, bjóði upp á góða aðstöðu og hafi tíma til að mæta þörfum hvolpsins. Jafnframt er mikilvægt að nýir eigendur séu opnir fyrir því sýna hundana sína á hundasýningum HRFÍ. Umfram allt vil ég fá góð heimili fyrir mína hvolpa þar sem þeir eru elskaðir fjölskyldumeðlimir.