IS22049/16
PL: 0/0 PRA3: FRÍR DNA niðurstöður fyrir PRA3 Augnskoðaður FRÍR (1 auka augnhár, 24/11 2016) Þyngd: 7 kg Sýningarárangur: Íslenskur meistari, Norskur meistari og Norðurlanda Junior Winner 2010. |
ISCh Nuch Nord JV-10 Mango's Nickelodeon fæddist 25. október 2009 hjá Mango's ræktun í Noregi, en ræktandi hans heitir Gerd Eva Varslot. Fyrstu sex ár ævi sinnar var hann í eigu Mette B Gauslå (Frolandstibbene) en er nú í eigu Sedalia ræktunar og Tíbráar Tinda ræktunar (Auður Valgeirsdóttir).
Nicky er fallegur og einstaklega skapgóður rakki sem hefur sannað sig á sýningum í Noregi. Hann á þar einnig falleg afkvæmi og við hlökkum mikið til að sjá hvað hann mun gefa okkur hérna á Íslandi. Nicky er fóstraður af Guðrúnu Karlsdóttur og fjölskyldu. |