Sóley fæddist 20. desember 2017 og er undan Chamiilon's Gold Jewel "Esme" og ISCh NOCh NORDJW-10 Mango's Nickelodeon.
Sóley er fyrsti hvolpurinn sem ég held eftir úr eigin ræktun, en hún er elskuð og fóstruð af æskuvinkonu minni, Höllu Marie Smith og manninum hennar, Anton. Sóley er einstaklega falleg og skapgóð tík sem hefur greinilega fengið það besta frá báðum foreldrum. Henni hefur gengið afskaplega vel á sýningum hingað til og vantar bara eitt stig uppá að verða íslenskur meistari. Sóley gaut 5 fallegum hvolpum 17. ágúst 2020. |