Sedalia's ræktunSedalia er Tíbet Spaniel ræktun, ræktunarnafnið var samþykkt vorið 2016, en fyrsta got ræktunarinnar kom í heiminn í nóvember 2015 í Noregi.
Ég keypti minn fyrsta tíbba heima á íslandi árið 2005 og eftir það var ekki aftur snúið, ég var kolfallin fyrir tegundinni. Því miður var minn fyrsti tíbbi, Fróði, ekki langlífur, en árið 2011, ári eftir að Fróði minn dó, keypti ég fallegan rakka frá Auði Valgeirsdóttur hjá Tíbráar Tinda ræktun. Ég fékk áhuga á sýningum, og fljótlega komst ég að því að mig langaði að fá fallega tíbbatík, til sýninga og ræktunar. Mín fyrsta tík var sæt og geðgóð tík frá Mic Mac ræktun í Svíþjóð, sem hefur átt 6 gullfallega hvolpa í Noregi og býr hjá systur minni í Danmörku. Í dag á ég rakka frá Auði og tík frá Chamiilon's ræktun í Noregi og tík frá Mow-Zow ræktun í Finnlandi auk þess sem ég á fallegan rakka frá Mango's ræktun í Noregi og býr á fóðurheimili. Markmið mitt er að rækta heilbrigða, geðgóða og tegundatýpíska tíbba og leggja mitt af mörkum til að ná fram því besta í tegundinni.
|