Í gær urðu hvolparnir tveggja daga gamlir! Allir eru sprækir og duglegir að drekka hjá Esme og þyngjast eftir því, en þyngd þeirra er í dag frá 480 uppí 600 grömm! Allir eru búnir að opna augun sín og verða sætari með hverjum deginum sem líður. Sedalia's Little Drummer Boy er orðinn 550 grömm og þvílíkur sjarmör. Hann er eini strákurinn og verður stundir undir hjá systrum sínum sem eru frekari, en hann braggast vel. Sedalia's Joy to the World er minnst, eða 473 gr. Hún er líka ljósust og verður kannski lík Nicky pabba sínum á lítinn. Þrátt fyrir að vera minnst braggast hún vel. Sedalia's Peace on Earth er orðin 522 gr. Hún er lítil bolla, minnir kannski á Esme mömmu sína að því leiti. Sedalia's Hope Has Come er langstærst, eða 600 gr.! Hún er líka ákveðin og finnst afskaplega gott að fá sopa hjá mömmu, líka þegar allir hinir eru farnir að sofa :) Sedalia's Jingle Bells fæddist minnst en er í dag 510 grömm. Hún er lang dekkst á litinn og vonandi verður hún með fína blesu.
0 Comments
|
Sedalia
Velkomin á heimasíðu Sedalia ræktunar! Sedalia er lítil ræktun af Tíbet Spaniel. Sarpur
March 2023
Flokkar
|